Knattspyrnu Akademía
Tækni, snerpa og leikskilningur fyrir 6–14 ára. Ekki bara boltameðferð, heldur hvernig á að lesa leikinn.
- Þjálfarar: Nihad og Janko
- Aðeins 18 iðkendur, tveir 9 manna hópar
- Aldurshópar: 6–8, 9–11 og 12–14 ára
Frí prufuæfing í 60+ - þriðjudaginn 8. sept →
Snerpa þjálfar fólk á öllum aldri - iðkendur í fótbolta og handbolta, 60+ hópinn, og þau sem vilja æfa styrk heima.
Svona byrjaði þetta - og svona er þetta í dag.
Mirza fær hugmynd að fótboltaakademíu. Hún verður að háskólaverkefni.
Byrjar að þjálfa 2 iðkendur. Hópurinn stækkar hratt í 10.
Fleiri vilja vera með. Tveir 12 manna hópar verða til.
9 af hverjum 10 eru hjá okkur lengi.
Fótbolti, handbolti, 60+ æfingar og fjarþjálfun - allt á einum stað.
Við höldum hópum litlum. Þannig finnur hver iðkandi að hann skiptir máli.
Skoða íþróttirnar okkarFjórar leiðir, hver með sína sérstöðu - sami metnaður í öllum.
Tækni, snerpa og leikskilningur fyrir 6–14 ára. Ekki bara boltameðferð, heldur hvernig á að lesa leikinn.
Snerpa, tækni og leikskilningur fyrir efnilega handboltaiðkendur.
Styrktarþjálfun fyrir 60 ára og eldri. Heilbrigður líkami er lykill að auknum lífsgæðum, sjálfstæði og virkni á öllum aldri.
Fyrir íþróttafólk sem vill verða betra í sinni íþrótt. Æfðu hvar og hvenær sem hentar þér.
Þjálfarar sem leggja sig alla fram fyrir hvern iðkanda.
Viltu vera hluti af teyminu? Sjá þjálfarastörf →
Orð frá foreldrum og iðkendum eftir æfingar hjá Snerpu.
„Minn segir að það hafi verið mjög gaman!“
„Upplifunin var mjög góð, bestu þjálfarar landsins í einstaklingsþjálfun. Spenntur fyrir framhaldinu.“
„Hann var mjög ánægður og hlakkar mikið til að koma aftur næsta sunnudag.“
„Byrjar vel og strákurinn mjög sáttur.“
„Góð, skemmtileg. Smá kalt.“
„Fyrsta æfing var frábær. Halid er mjög ánægður. Takk fyrir!“
„Æfingarnar fjölbreyttar og nákvæm leiðsögn þjálfaranna fyrir hvern og einn iðkanda til fyrirmyndar. Pjakkurinn mjög sáttur :)“
„Okkar strákur var mjög sáttur og spenntur fyrir næstu æfingu strax.“
„Metnaðarfull æfing, þjálfarar veita börnunum mikla athygli og ráðgjöf. Gaman að sjá svona vandað starf.“
„Góð upplifun og skemmtilegar æfingar.“
„Finn miklu meira jafnvægi eftir bara nokkrar vikur. Þjálfararnir eru einstaklega natnir og hlýir.“
„Frábær félagsskapur og gott að hreyfa sig með fólki á mínum aldri. Kaffispjallið á eftir er ekki síðra en æfingin sjálf.“
„Loksins æfingar sem taka mið af því sem maður ræður við. Ég finn mig miklu sterkari en fyrir ári.“
„Þjálfararnir útskýra allt vel og passa upp á að maður geri æfingarnar rétt. Mæli hiklaust með fyrir jafnaldra mína.“
„Skemmtilegasta klukkutíminn minn í vikunni. Kem alltaf endurnærð heim.“
Finnur þú ekki svarið sem þú leitar að? Sendu okkur línu.
Þetta er breytilegt eftir prógrammi - almennt er ekki boðið upp á endurgreiðslu fyrir staka æfingu sem sleppt er. Sjá nánari upplýsingar á síðu hvers prógramms eða hafðu samband við okkur.
Skráning og greiðsla fyrir fótbolta og 60+ æfingar fer fram á Sportabler/Abler, og uppsögn fer fram þar samkvæmt skilmálum viðkomandi prógramms. Ef þú ert ekki viss hvernig á að bera sig að, sendu okkur línu og við hjálpum þér.
Já, 15% systkinaafsláttur er í boði í bæði Knattspyrnu Akademíu og Handbolta Akademíu. Hafðu samband við okkur til að fá staðfest hvernig þetta gildir fyrir þitt prógramm.
Þægilegan íþróttafatnað og skó sem henta æfingunni, og vatnsbrúsa. Frekari leiðbeiningar berast við skráningu.
Sums staðar eru pláss takmörkuð og fyllast hratt - t.d. í fótbolta og handbolta. Við mælum með að skrá sig snemma til að tryggja pláss.
Sendu okkur línu á info@snerpacoaching.is eða notaðu Hafa samband formið.
Æfingaföt, aukahlutir og stafrænt efni frá Snerpu - bæði áþreifanlegar og stafrænar vörur.
Skoða verslunMyndir og myndbönd af æfingum, viðburðum og daglegu lífi hjá Snerpu - nýjasta efnið er alltaf á Instagram.
@snerpathjalfun á Instagram