60+ Æfingar
Styrktarþjálfun fyrir 60 ára og eldri. Heilbrigður líkami er lykill að auknum lífsgæðum, sjálfstæði og virkni á öllum aldri. Æfingar eru í boði kl. 10:00 eða kl. 11:00.
Hjá Snerpu Þjálfun bjóðum við upp á markvissa styrktarþjálfun fyrir 60 ára og eldri sem byggir á gagnreyndri þekkingu og alþjóðlegum ráðleggingum um hreyfingu fyrir eldra fólk. Markmið okkar er að bæta hreyfigetu, efla stoðkerfið og auka styrk sem nýtist í daglegu lífi.
Við leggjum áherslu á þjálfun sem hefur skýran tilgang. Hver æfing er valin með það að markmiði að styðja við heilsu, hreyfigetu og sjálfstæði — ekki að æfa meira, heldur að æfa betur. Æfingarnar henta öllum getustigum og eru aðlagaðar hverjum og einum.
Á æfingum verður lögð áhersla á:
- Markvissa styrktarþjálfun fyrir vöðva og stoðkerfi
- Jafnvægi, stöðugleika og fallvarnir
- Hreyfigetu og færni sem nýtist í daglegum athöfnum
- Framfarir sem byggja á öruggri og faglegri uppbyggingu
Við trúum því að þekking sé mikilvægur hluti af árangri. Þess vegna bjóðum við upp á fræðslufyrirlestra yfir veturinn um meðal annars styrktarþjálfun, næringu, endurheimt og aðra þætti sem styðja við heilbrigða öldrun og aukin lífsgæði.
Við leggjum líka ríka áherslu á að skapa hlýlegt og uppbyggjandi samfélag. Að loknum æfingum gefst þeim sem vilja tækifæri til að setjast saman yfir kaffibolla, spjalla og njóta góðs félagsskapar.
Boðið verður upp á takmarkað pláss, svo allir fái sem mesta möguleika á að ná árangri.
Veldu tíma
Skráning og greiðsla fer fram á Abler.