← Til baka í íþróttirnar okkar SNERPA ÞJÁLFUN

Golf Styrkur

Aðeins 12 sæti!
8 vikna námskeið

Golfstyrktarþjálfun sem er byggð upp í kringum golfsveifluna - ekki almenn ræktaræfing. Áhersla á snúningskraft, jafnvægi og hreyfanleika, það sem skilar sér beint út á völlinn.

Þetta námskeið er fyrir alla sem vilja komast í betra form, auka styrk, auka liðleika og tengja það við golfsveifluna. Hentar öllum sem vilja taka heilsunni alvarlega og drive-a lengra - hver vill það ekki?

Það sem gerir þetta námskeið einstakt er að allir sem sækja það hafa sameiginlegt áhugamál - golfið. Þið eruð öll að sinna heilsunni markvisst, saman, undir leiðsögn þjálfara.

Hverju má búast við á æfingu?

  • Lengri högg - aukinn snúningskraftur og sprengikraftur í gegnum sveifluna.
  • Betra jafnvægi - stöðugleiki sem skilar sér í hreinni og öruggari sveiflu.
  • Færri meiðsli - liðleiki og styrkur sem verndar líkamann til lengri tíma.
  • Aðeins 12 þátttakendur - stigvaxandi 8 vikna prógram með náinni leiðsögn þjálfara.

Mjög takmarkað pláss - aðeins 12 sæti í boði á þessu námskeiði!

STAÐSETNING
Golfstöðin, Glæsibæ - aðgangur að Golfstöðinni innifalinn þegar þú sækir æfingar
ÞJÁLFARI
Haukur Leifur Eiríksson - íþróttafræðingur með sérhæfingu í styrktar- og þrekþjálfun
HVENÆR
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 07:00, laugardaga kl. 08:30
UPPBYGGING
Stigvaxandi 8 vikna námskeið, 24 æfingar samtals, aðeins 12 þátttakendur - 2. nóvember til 18. desember.
VERÐ
84.000 kr / námskeið

Fyrir 2 mánuði - 24 æfingar samtals (3.500 kr æfingin). Aðgangur að Golfstöðinni innifalinn. Hægt að skipta greiðslu í 2 hluta.

Skráning

Þetta eyðublað er ekki greiðsla - þar sem einungis 12 komast að höfum við samband við þig til að staðfesta pláss og ganga frá greiðslu.

Takmarkað pláss - Skrá mig