← Til baka í íþróttirnar okkar SNERPA ÞJÁLFUN

Handbolti

Hjá Snerpu Þjálfun leggjum við áherslu á að ungir og efnilegir handboltaiðkendur öðlist þá tækni, hreyfigetu og leikskilning sem þarf til að ná markmiðum sínum.

Það er ekki nóg að kunna að meðhöndla boltann — leikmaður þarf að skilja leikinn, taka réttar ákvarðanir og sjá næstu leiki fyrir. Á Íslandi finnst okkur skorta markvissa þjálfun í þessum þáttum, svo í okkar tímum einblínum við á snerpu, tækni og leikskilning.

Hjá Snerpu erum við eins og handboltalið — við vinnum saman að því að hjálpa hverjum og einum iðkanda að ná sínum markmiðum. Iðkandinn kemur til okkar með 100% vilja til að verða betri, og við mætum því með sömu einlægni og fókus.

Hverju má búast við á æfingu?

  • Aðeins 16 iðkendur — litlir hópar tryggja gæði og athygli, hver iðkandi sést og fær leiðsögn.
  • Skipt í tvo 8 manna hópa — nánast einkaþjálfun, nákvæm leiðsögn og markviss endurgjöf.
  • 100% fókus á tækni — boltameðferð, fótavinna, skottækni og ákvarðanataka.
  • Meðvituð endurtekning — æfingarnar dýpka með hverju skipti þar til iðkandinn nær 100% tökum.

„Að ná tökum kemur ekki með fjölbreytni, heldur með endurtekningu með tilgang.“

Við mælum eindregið með að skrá sem fyrst — aðeins 36 pláss laus!

STAÐSETNING
Kemur síðar (höfuðborgarsvæðið)
ÞJÁLFARAR
Gísli Rúnar Jóhannsson og Aron Daði Bergþórsson
HVENÆR
Alla sunnudaga — nákvæmur tími ekki ákveðinn enn, líklega fyrir hádegi
UPPBYGGING
Aðeins 16 iðkendur, skipt í tvo 8 manna hópa. Áhersla á tækni, hreyfigetu og leikskilning.
VERÐ
23.900 kr / mán

Áskrift sept. 2026 – maí 2027 · Systkinaafsláttur 15% · æfingafjöldi breytilegur milli mánaða (des. 3 v/jólafrís), gjaldið jafnað út yfir tímabilið.

Veldu aldurshóp — forskráning

Athugið: Forskráning er ekki bindandi greiðsla. Við höfum samband um leið og pláss er staðfest og skráum í gegnum Sportabler fyrir greiðslu þegar æfingar byrja.

Skrá í handbolta