Styrktarprógröm fyrir félög sem vilja ná árangri inn á vellinum
Hönnuð af Hauki og Gísla Martin íþróttafræðingum. Mánaðarlegt styrktarplan fyrir lið og aldurshópa, aðlagað að álagi hvers mánaðar, með aðgangi að spjalli við okkur.
Hvað fær félagið?
- Nýtt styrktarplan í hverjum mánuði fyrir aldurshóp og stig, sent rafrænt með myndböndum af öllum æfingum.
- Spjall við okkur: þjálfari félagsins fær aðgang að spjalli við okkur og getur sent fyrirspurnir.
- Aðlagað að álagi: þyngra í rólegum mánuðum, léttara og með meiri endurheimt í kringum mót og leikjatörn.
- Árangur inn á vellinum: styrkur, sprengikraftur, hraði og stöðugleiki, með áherslu á það sem skilar sér í leiknum.
- Meiðslaforvarnir: upphitun og styrktaræfingar fyrir ökkla, hné, mjaðmir og kvið sem draga úr hættu á meiðslum.
- Upphitunarrútína sem þjálfarinn getur notað á hverri æfingu.
- Einföld próf (stökk og sprettur) til að sjá framfarir hópsins milli mánaða.
- Aðgangur fyrir alla þjálfara félagsins að plani og myndböndum, svo allir kenni æfingarnar eins.
Þjálfari félagsins stýrir æfingunum og aðlagar þær að sínum leikmönnum. Plönin eru leiðbeinandi, og ábyrgð á framkvæmd æfinga er hjá félaginu.
Hver hannar prógrammið?
Prógrömmin eru hönnuð af Hauki og Gísla Martin, íþróttafræðingum og stofnendum Snerpu. Við svörum fyrirspurnum þjálfara félagsins í spjalli.
Haukur Leifur Eiríksson
Gísli Martin Sigurðsson
Hvernig byrjum við?
- Þú sækir um hér að neðan.
- Við svörum innan tveggja virkra daga og stillum planið af fyrir ykkar hóp.
- Þjálfari félagsins fær fyrsta mánaðarplanið og hefst handa.
Verð
Fast verð, lágmark 3 mánuðir. Eftir það mánaðarlegur uppsagnarfrestur.
Sækja umSækja um
Segðu okkur frá félaginu og við höfum samband. Við svörum innan tveggja virkra daga.
Algengar spurningar
Fyrir lið og aldurshópa í handbolta, körfubolta og fótbolta. Planið er sniðið að aldri og stigi hópsins, hvort sem það er yngri flokkur eða meistaraflokkur.
Nei. Þjálfari félagsins stýrir æfingunum eftir planinu og við styðjum hann með leiðbeiningum, myndböndum og svörum við spurningum.
Þjálfari félagsins fær aðgang að spjalli við okkur og getur sent fyrirspurnir um planið og æfingarnar.
Áskriftin gildir í lágmark 3 mánuði á 26.900 kr á mánuði. Eftir það er hægt að segja upp með mánaðar fyrirvara.
Við tökum tillit til leikjadagskrár og móta. Í rólegum mánuðum er meiri þungi, en í kringum mót og leikjatörn er álagið léttara og endurheimt fær meira vægi.