← Til baka í íþróttirnar okkar SNERPA ÞJÁLFUN

60+ Æfingar

Laus pláss

Styrktarþjálfun fyrir eldri borgara og 60 ára og eldri í Reykjavík. Heilbrigður líkami er lykill að auknum lífsgæðum, sjálfstæði og virkni á öllum aldri. Æfingar eru í boði kl. 10:00 eða kl. 11:00.

TAKMARKAÐ TILBOÐ

Prófaðu frítt!

Komdu og prófaðu eina 60+ æfingu frítt - engin skuldbinding, engin greiðsla.

Prófaðu frítt

Hjá Snerpu Þjálfun bjóðum við upp á markvissa styrktarþjálfun fyrir 60 ára og eldri sem byggir á gagnreyndri þekkingu og alþjóðlegum ráðleggingum um hreyfingu fyrir eldra fólk. Markmið okkar er að bæta hreyfigetu, efla stoðkerfið og auka styrk sem nýtist í daglegu lífi.

Við leggjum áherslu á þjálfun sem hefur skýran tilgang. Hver æfing er valin með það að markmiði að styðja við heilsu, hreyfigetu og sjálfstæði - ekki að æfa meira, heldur að æfa betur. Æfingarnar henta öllum getustigum og eru aðlagaðar hverjum og einum.

Á æfingum verður lögð áhersla á:

  • Markvissa styrktarþjálfun fyrir vöðva og stoðkerfi
  • Jafnvægi, stöðugleika og fallvarnir
  • Hreyfigetu og færni sem nýtist í daglegum athöfnum
  • Framfarir sem byggja á öruggri og faglegri uppbyggingu

Við trúum því að þekking sé mikilvægur hluti af árangri. Þess vegna bjóðum við upp á fræðslufyrirlestra yfir veturinn um meðal annars styrktarþjálfun, næringu, endurheimt og aðra þætti sem styðja við heilbrigða öldrun og aukin lífsgæði.

Við leggjum líka ríka áherslu á að skapa hlýlegt og uppbyggjandi samfélag. Að loknum æfingum gefst þeim sem vilja tækifæri til að setjast saman yfir kaffibolla, spjalla og njóta góðs félagsskapar.

Boðið verður upp á takmarkað pláss, svo allir fái sem mesta möguleika á að ná árangri.

STAÐSETNING
Studio Iða, Grímsbæ - Gautland, Reykjavík
DAGAR OG TÍMAR
Þriðjudaga og fimmtudaga, kl. 10:00–11:00
ÞJÁLFARAR
Haukur Leifur Eiríksson og Gísli Martin Sigurðsson - íþróttafræðingar með sérhæfingu í styrktar- og þrekþjálfun
Haukur Leifur Eiríksson, þjálfari hjá Snerpu
Haukur Leifur Eiríksson
Þjálfari · Íþróttafræðingur
Gísli Martin Sigurðsson, þjálfari hjá Snerpu
Gísli Martin Sigurðsson
Þjálfari · Íþróttafræðingur
VERÐ
19.990 kr / mán

Skráning

Hjónatilboð

Skráning og greiðsla fer fram á Straumur. Hægt er að segja upp áskrift hvenær sem er og byrja aftur síðar - engin binding fyrir allt tímabilið, enginn uppsagnarfrestur.

SPURT OG SVARAÐ

Algengar spurningar

Fyrir 60 ára og eldri, þar á meðal eldri borgara. Æfingarnar henta öllum getustigum og eru aðlagaðar hverjum og einum.

Í Studio Iðu, Grímsbæ, Gautlandi í Reykjavík, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10:00 eða kl. 11:00.

19.990 kr á mánuði. Hjónatilboð er í boði.

Haukur Leifur Eiríksson og Gísli Martin Sigurðsson, íþróttafræðingar með sérhæfingu í styrktar- og þrekþjálfun.

Markvissa styrktarþjálfun fyrir vöðva og stoðkerfi, jafnvægi, stöðugleika og fallvarnir, og hreyfigetu sem nýtist í daglegum athöfnum.

Já, frí prufuæfing er í boði á þriðjudögum og fimmtudögum. Skráðu þig á síðunni Prófaðu frítt.

Nei. Hægt er að segja upp áskrift hvenær sem er og byrja aftur síðar, enginn uppsagnarfrestur.

Laus pláss - Skrá núna