← Til baka í íþróttirnar okkar SNERPA ÞJÁLFUN

Fótbolti

Hjá Snerpu læra ungir iðkendur (6–14 ára) rétta tækni, hreyfigetu og leikskilning — ekki bara boltameðferð, heldur hvernig á að lesa leikinn og taka réttar ákvarðanir.

Hverju má búast við á æfingu?

  • Aðeins 18 iðkendur — litlir hópar tryggja að hver iðkandi sést og fær leiðsögn.
  • Skipt í tvo 9 manna hópa — nákvæm og markviss þjálfun.
  • 100% fókus á tækni, boltameðferð, fótavinnu, fyrstu snertingu og ákvarðanatöku.
  • Meðvituð endurtekning — æfingarnar dýpka með hverju skipti þar til iðkandinn nær tökum.

Æfingafjöldi er breytilegur milli mánaða (4–5, í desember 3 vegna jólafrís) en mánaðargjaldið er jafnað út yfir tímabilið.

Þetta hefur verið uppselt hratt síðustu 2 ár — við mælum með að skrá sem fyrst.

STAÐSETNING
Kaplakriki, Dvergurinn (innanhúss)
ÞJÁLFARAR
Nihad Hasecic („Cober“) og Milan Stefan Jankovic („Janko“) — auk aðstoðarþjálfara
ÆFINGATÍMI
50 mínútur
UPPBYGGING
Aðeins 18 iðkendur, skipt í tvo 9 manna hópa. Áhersla á grunntækni, hraða og leikskilning í þægilegu umhverfi.
VERÐ
23.900 kr / mán

Veldu aldurshóp

Ekki er endurgreitt fyrir æfingu sem ekki er mætt á. Uppsögn fer fram í gegnum Sportabler.

Skrá í fótbolta